Ferðaþjónustan Hjalla ehf er rekin á lögbýlinu Hjalla í Kjósarhrepp. Býlið Hjalli er nýbýli út úr jörðinni Eyjum I síðan árið 1952. Hefðbundinn búskapur var stundaður á jörðinni þ.e.a.s. mjólkurframleiðsla og sauðfjárrækt. Árið 1980 keyptu núverandi ábúendur jörðina, og bjuggu þar fyrstu árin með kýr og kindur. Ennþá er sauðfjárbúskapur stundaður á jörðinni ásamt ferðaþjónustu. Hjalli er 50 km frá Reykjavík, við veg nr. 461, 5 km frá Hvalfjarðarvegi nr. 47.
Þjónusta á Hjalla: Gisting í 1x4 manna smáhýsi (koja 140cm beidd). Lítið og fjölskylduvænt tjaldstæði. Aðstaða fyrir hestamenn. Hlaðan: aðstaða fyrir fundi og mannamót. Hjalli sími: 5667019 8972219 8682219 Netfang: hjalli@kaffikjos.is