|
|
|
|
|
Kaffi Kjós - SJÁLBÆRNISTEFNA
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Ferðaþjónustan Hjalla ehf er rekin á lögbýlinu Hjalla í Kjósarhrepp. Hjalli er nýbýli úr jörðinni Eyjum I (1952). Hefðbundinn búskapur var stundaður á jörðinni framan af en nú er það ferðaþjónusta og sauðfjárbúskapur. Kjósin er landsvæði við sunnanverðan Hvalfjörð, aðal atvinnustarfsemi á svæðinu er landbúnaður og ferðaþjónusta. Í Kjósinni er fuglalíf fjölskrúðugt og náttúruperlur margar. Hægt er að njóta náttúrunnar á margvíslega hátt t.d. með veiði, gönguferðum og reiðtúrum. Ferðaþjónustan Hjalla ehf er fjölskyldufyrirtæki og leggjum við mikla áherslu á heimilislegt og fjölskylduvænt umhverfi. Við bjóðum upp á gistingu í smáhýsi, tjaldsvæði, salarútleigu og góða aðstöðu fyrir hestamenn. Þjónustumiðstöðin Kaffi Kjós er veitingastaður og verslun. Í samvinnu við Ferðaþjónustu bænda og aðra samstarfsaðila ætla eigendur að vinna markvisst að umhverfismálum í framtíðinni og stuðla að sjálfbærari þróun með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi.
Við Ferðaþjónustunni Hjalla ehf ætlum því að:
- vinna markvisst að því að halda nánasta umhverfi hreinu og aðlaðandi,
- stuðla að verndun menningar- og náttúruminja,
- draga úr mengun með minni verðmætasóun t.d með endurnýtingu, endurvinnslu, orkusparnaði og notkun á umhverfisvænum efnum og tryggja að fráveitumálin hafi ekki spillandi áhrif á umhverfið,
- velja frekar vörur og þjónustu sem koma úr heimabyggð og sem lágmarka neikvæð umhverfisáhrif, þar sem því verður viðkomið.
- ráða til starfa fólk úr heimabyggð þegar tækifæri gefst til þess,
- leita sífellt eftir frekari fræðslu um umhverfismál og koma þeim upplýsingum áfram til starfsfólks,
- hvetja gesti, birgja og viðskiptavini til að taka þátt í að vernda umhverfið með okkur,
- styrkja samstarfið við sveitarfélagið, önnur fyrirtæki og íbúa á svæðinu,
- uppfylla ákvæði laga og reglugerða sem tengjast starfseminni,
- vinna stöðugt að úrbótum í rekstri og þjónustu til að draga úr skaðlegum umhverfisáhrifum með því að endurskoða sjálfbærnisstefnuna árlega og fá umhverfisvottun Green Globe.
|
|
|
|
|
| Kaffi Kjós þjónustumiðstöð | Meðalfellsvegi Kjós | S: 566 8099 | Ferðaþjónustan Hjalla ehf | Hjalla Kjós | S:566 7019 | 276 Mosfellsbæ | 
|